Þar sem verið er að gera endurbætur á hringveginum þar sem hann liggur í gegnum Borgarnes verður vegurinn lokaður en vel merktar hjáleiðir hafa verið opnaðar. Framkvæmdirnar munu standa í um það bil þrjá mánuði en hluti vegarins verður þó opnaður fyrr.
Veginum var lokað nú í hádeginu í dag.
Fyrir þá sem koma að sunnan, á norðurleið, er búið að loka hringveginum við tengingu að Hyrnu og er nú farin hjáleið sem liggur til hægri framhjá Olís og kemur aftur inn á hringveginn neðan Vírnets. Þeir sem koma að norðan þurfa nú að beyja til vinstri inn á hjáleið neðan Vírnets.
Búið er að loka fyrir tengingu frá Hyrnu og inn á Borgarbraut þannig að aðkoma er frá Brúartorgi.
Framkvæmdir eru vel merktar og einnig hjáleiðir.
Framkvæmdir þarna munu standa yfir í um það bil þrjá mánuði en reiknað er með að hluti af vegi verði opnaður fyrir umferð fyrr.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og tillitsemi.