Formaður nemendafélags Fjölbrautarskóla Vesturlands, Salvar Georgsson, hefur sagt sig frá formennsku í nemendafélagi skólans að kröfu skólameistara. Málið snertir hópferð, sem nemendafélagið stóð fyrir, en þar var unglingum veitt áfengi.
„Afsagnarbréf hans var lagt fram á skólaráðsfundi
í dag. Tildrög málsins eru að nemendafélagið
efndi til hópferðar þann 15. febrúar þar
sem unglingum var veitt áfengi,“ segir á vefsíðu skólans.