Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndar um byggingu nýs háskólasjúkrahúss kynntu starfsmönnum og fjölmiðlum stöðu byggingamála LSH í dag.
Tveir kynningafundir voru á Landspítalanum þar sem ráðherra og formaður nefndarinnar kynntu starfsmönnum stöðu undirbúnings byggingamálanna, annar í Fossvogi og hinn við Hringbraut.
Stefnt að hönnunarsamkeppni
Nú liggja að mestu fyrir frumáætlanir um byggingu nýs Landsspítala af hálfu dönsku arkitektanna frá C.F. Möller. Stefnt er að forvali hönnunarsamkeppni á næstu vikum. Samkeppnisgögnin eiga að liggja fyrir í júnímánuði og munu þau teymi sem valin verða í forvalinu fá samkeppnisgögnin afhent í júlí og hafa þá þrjá mánuði til að vinna tillögur sínar.
Samtímis hefur nefnd undir forystu Ingu Jónu Þórðardóttur endurmetið og yfirfarið allar forsendur fyrir byggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Frumáætlanir arkitektanna og framvinda alls verksins er í fullu samræmi við það sem nefndin hefur lagt fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra.
Meðal þess sem nefndin fór yfir voru spurningar og ábendingar um staðsetningu nýja sjúkrahússins. Niðurstaða nefndarinnar var sú að besta staðsetningin fyrir nýtt háskólasjúkrahús sé við Hringbraut.
Þrotlaus undirbúningsvinna hefur staðið frá árinu 2005 vegna þessa mikla og flókna mannvirkis. Skipulagssamkeppni um svæðið við Hringbraut lauk haustið 2005 og bar tillaga dönsku arkitektanna C.F. Möller sigur úr býtum. Í framhaldi af þeirri samkeppni var samið við C.F. Möller og skipuð framkvæmdanefnd vegna byggingar sjúkrahússins. Á þriðja hundrað manns tóku þátt í umfangsmikilli þarfagreiningu á nýja háskólasjúkrahúsinu. Í framhaldi af þeirri vinnu var samið við arkitektastofuna C.F. Möller í Árósum í Danmörku um að skila frumáætlun að byggingunni sem nú liggur fyrir í samráði við það fagfólk af hálfu LSH sem unnið hefur að undirbúningnum, að því er fram kemur í tilkynningu.
Hópar fólks sem ekki hafa áður komið að verkinu verða fengnir til að rýna áætlunina við gerð samkeppnisgagnanna og þannig að tryggt verði að hugsað sé fyrir öllu og vel sé að verki staðið.
Vinningstillaga kynnt í nóvember
Stefnt er að því að kynna vinningstillögu í samkeppninni í nóvember og jafnframt að undirrita samning um hönnun nýja háskólasjúkrahússins. Þegar endanleg hönnun og útlit liggur fyrir verður hægt að kynna raunhæfa kostnaðaráætlun við bygginguna.