Þriggja bíla árekstur varð við Vogaafleggjarann á Reykjanesbraut um kl. 18:30 í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum er lögregla og sjúkrabílar á staðnum. Beita hefur þurft klippum til að ná fólki úr bílum, en lögreglu telur að enginn hafi slasast alvarlega. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu, en vegurinn er lokaður í báðar áttir.