Lýst eftir vitnum að líkamsárás

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað laugardaginn 4. september 2004 um miðjan dag á Eyjafjarðarbraut eystri skammt frá Akureyri.

Málsatvik voru þau að karlmaður veittist að konu á rauðri fólksbifreið og veitti henni alvarlega áverka. Tveir karlmenn á jeppabifreið munu hafa komið að þar sem þetta átti sér stað og tekið árásarmanninn á brott með sér.

Lögreglan biður þá sem komu þarna að og aðra þá sem hugsanlega hafa vitneskju um málið að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464-7705.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert