Tilkynnt var um slagsmál í vistarverum hælisleitenda í Reykjanesbæ í nótt. Að sögn lögreglu reyndist einn maður slasaður og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem kom í ljós að hann er nefbrotinn og ekki ólíklegt að hann sé einnig kinnbeinsbrotinn.
Maður, sem grunaður er um árásina, var handtekinn og færður í fangahús vegna frekari rannsóknar.