Bensínstöð lokað vegna gaslyktar

Lögreglumenn á vettvangi á bensínstöðinni.
Lögreglumenn á vettvangi á bensínstöðinni. mbl.is/Júlíus

Select, bensínstöð Shell við Vesturlandsveg, hefur verið lokað vegna gaslyktar sem fundist hefur á staðnum. Verslunum staðarins hefur verið lokað og aðgengi að stöðinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað um uppruna lyktarinnar eða hvort hætta er á ferðum, en stöðin verður lokuð þar til gengið hefur verið úr skugga um það hvað er á seyði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert