Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að minnihluti borgarstjórnar Reykjavíkur sé að leita að fagstjórnenda til að taka sæti í stjórn REI dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur og muni tilnefna hann á næstu dögum.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.
Formaður stjórnar REI sem skipuð var í dag er Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Auk hans var Ásta Þorleifsdóttir kjörin í stjórn REI. Minnihluta borgarstjórnar Reykjavíkur stendur sem fyrr segir til boða að tilnefna fulltrúa í stjórnina en Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, skipar stjórnarsætið þar til tilnefning liggur fyrir.