Glussi lak af krana á vörubíl á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrar í Reykjavík klukkan þrjú í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er enn á staðnum að aðstoða Hreinsideild borgarinnar við að þrífa göturnar. Talið er að um 40 lítrar hafi runnið af krananum og valdið einhverjum töfum á umferðinni.