Snjórinn setur svip á bæjarlífið í Eyjum

mbl.is/Sigurgeir

Óvenju mikill snjór hefur verið í Vestmannaeyjum síðustu vikur og síðustu daga hefur snjóað upp á hvern einasta dag. Þetta hefur áhrif á bæjarlífið því Eyjamenn eru ekki vanir miklum snjó.

Hér er Erling Gylfason, flugmaður á sjúkraflugvél sem staðsett er í Eyjum að gera flugvélina klára fyrir flug. Urðu flugmennirnir að grípa til kústsins til að hreinsa snjóinn af vélinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert