Skemmtanir, t.d. dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eru bannaðar á ákveðnum tímum yfir bænadaga og páska, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram eru einnig bannaðar á ákveðnum tímum. Listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á föstudaginn langa en slíkir viðburðir mega ekki hefjast fyrr en kl. 15 umræddan dag.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um opnunartíma yfir páskana hér.