Hálka og snjókoma á Hellisheiði

Á Suðurlandi er hálka og snjókoma á Sandskeiði, í Þrengslum og á Hellisheiði. Annars eru víða hálkublettir. Á Vesturlandi er víðast hvar hálka eða hálkublettir. Hálka er á Holtavörðuheiði.

Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúp, Hálfdán og á Klettshálsi. Þungfært er um Steingrímsfjarðarheiði en mokstur stendur yfir. Annars er hálka á flestum leiðum á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir. Hálka og éljagangur er á Öxnadalsheiði. Lágheiði er ófær.

Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja. Hálka eða hálkublettir eru á Austurlandi. Á Suðausturlandi eru hálkublettir. Ófært erum Öxi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert