Morgunblaðinu hefur borist tölvupóstur frá ónafngreindum aðila sem segist hafa skrifað „We will never forget" á danska sendiráðið á Íslandi fyrr í vikunni í tilefni þess að eitt ár er liðið frá niðurrifi Ungdomshússins í Kaupmannahöfn.
Fram kemur í tölvupóstinum að hauskúpan hafi verið tákn Ungdómshússins og talan 69 einnig en hún var rituð á annan fánann. Við munum aldrei gleyma og við gefumst ekki upp, segir í tölvubréfinu.
Eins og fram kom á Fréttavef Morgunblaðsins í gær var krotað á danska sendiráðið, sem er við Hverfisgötu aðfararnótt miðvikdags. Spellvirkjarnir skildu eftir skilaboðin „We will never forget“, eða „Við munum aldrei gleyma“ á einum veggnum. Auk þess var sjóræningjafáni dreginn að húni.