Ræninginn fundinn

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Lögregla hefur handtekið mann sem reyndi að stela fartölvum úr verslun í Borgartúni í fyrradag en lýst var eftir manninum í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur maðurinn játað brotið og er hann í haldi lögreglu. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manninum.

Ræninginn fjarlægði þjófavörn af tölvunum og hugðist halda með þær á brott en afgreiðslumaður freistaði þess að hindra för hans. Utan við verslunina kom til átaka og slasaðist afgreiðslumaðurinn lítilsháttar en ræninginn komst undan tómhentur því tölvurnar urðu eftir á vettvangi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert