Utanríkisráðherra í opinbera heimsókn til Danmerkur

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Utanríkisráðherra,  Ingibjörg  Sólrún  Gísladóttir,  hefur á morgun tveggja
daga  opinbera  heimsókn  til  Danmerkur. Mun Ingibjörg Sólrún ganga á fund Margrétar   Þórhildar   Danadrottningar   og   hitta   Per   Stig   Møller,
utanríkisráðherra  Dana.  Á meðal þeirra mála sem þau munu ræða eru málefni Norður-Íshafsins, Afganistan, Mið-Austurlanda og loftslagsmál, Evrópumál og framboð  Íslands  til  öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 

Þá á ráðherra fundi með  utanríkismálanefnd  danska  þingsins, Helle Thorning-Schmidt, formanni danskra jafnaðarmanna og Bertil Haarder,  menntamálaráðherra, samkvæmt tilkynningu.

Í  tilefni heimsóknar ráðherra stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir ráðstefnu
á  morgun  í  Kaupmannahöfn um íslensk efnahagsmál í ljósi alþjóðavæðingar. Flytur Ingibjörg Sólrún framsöguerindi ráðstefnunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert