Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fylgjast sérstaklega með notkun stefnuljósa í umferðinni þessa vikuna.
Lögreglan mun verða sýnileg á gatnamótum í umdæminu og mun grípa inn í þar sem hún telur þess þörf. Lögreglan leggur áherslu á og brýnir fyrir ökumönnum að hætta og óþægindi geta skapast þegar stefnuljós eru ekki notuð.
Fjöldi ökumanna hefur þegar verið sektaður á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.