Sumir er stundum dálítið seinir að taka niður jólaljósin. Hjá mörgum er þetta trassaskapur en einnig taka sumir meðvitaða ákvörðun um að leyfa ljósunum að vera á sínum stað þó að jólahátíðin sé löngu liðin. Flestir eru þó sammála um að þegar kemur fram á vorið er frekar einkennilegt að horfa á jólaljós. Í gær voru starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur að taka niður jólaljós á Austurvelli.