Bæjarstjórnin í Garði samþykkti nú síðdegis framkvæmda- og byggingaleyfi fyrir álver í Helguvík. Sex bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með, en einn var á móti. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykki leyfið einnig, tíu bæjarfulltrúar sögðu já, en einn sat hjá.