Skotvopnaþjófur gaf sig fram

Fimmti maðurinn, sem lögreglan leitaði vegna þjófnaðar á skotvopnum í Hafnarfirði er nú fundinn. Hann gaf sig fram í gærkvöld eftir að lögreglan hafði náð tali af honum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir, að maðurinn, sem sé rúmlega tvítugur, hafi viðurkennt þátt sinn í málinu og einnig aðild sína að öðrum þjófnaðarmálum á höfuborgarsvæðinu að undanförnu. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku og telst málið upplýst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert