Áfrýjunarnefnd staðfestir brot Eimskips

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Eimskip hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á sjóflutningamarkaði og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. Áfrýjunarnefndin lækkaði hins vegar stjórnvaldssekt, sem Eimskip er gert að greiða, úr 310 milljónum króna í 230 milljónir.

Brot Eimskips fólust að mati samkeppnisyfirvalda annars vegar í  aðgerðum, sem beindust gegn Samskipum og hins vegar í gerð fjölmargra ólögmætra einkakaupasamninga við viðskiptavini Eimskips. Með þessum samningum skuldbatt Eimskip viðskiptavini sína til þess að kaupa flutningaþjónustu einungis af félaginu.

Fyrir áfrýjunarnefndinni hélt Eimskip því fram að málinu hafi ranglega verið beint að félaginu, það væri ekki markaðsráðandi og aðgerðir þess hefðu falið í sér eðlilega samkeppni en ekki brot á samkeppnislögum.

Áfrýjunarnefndin komst að þeirri niðurstöðu, að Samkeppniseftirlitið hafi réttilega beint málinu að Eimskip. Jafnframt staðfesti nefndin, að félagið væri í markaðsráðandi stöðu. Einnig staðfesti áfrýjunarnefnd, að Eimskip hefði brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga með aðgerðum sem miðuðu að því að veikja Samskip verulega og varanlega og með gerð ólögmætra einkakaupasamninga. Telur áfrýjunarnefnd að um hafi verið að ræða alvarleg brot á samkeppnislögum.

Sektin, sem Eimskip er gert að greiða, er sú hæsta, sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur lagt á vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert