Maður lokaði sig inni á salerni með haglabyssu í heimahúsi í Reykjanesbæ í kvöld og hótaði að skaða sig. Sérsveit lögreglunnar í Reykjavík var kölluð út og náði lögreglan að tala manninn til. Hann var færður á lögreglustöð.
Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum lokaði sérsveitin af svæði í kringum húsið en maðurinn ógnaði engum.
Heimilisfólk bað um aðstoð lögreglu fyrr í kvöld.