Fjórir voru teknir fyrir of hraðan akstur á þjóðvegi 1 við Skagafjörð. Mjög mikil umferð var í dag á þessum vegi og sagði lögreglan þar að heilt yfir hefði verið mjög góður hraði á ökumönnunum. Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði alls 14 manns fyrir of hraðan akstur síðan kl. 14.00 í dag.