Dönsku bankarnir keppa við þá íslensku

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. AP

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir í viðtal við danska blaðið Politiken í dag, að líta verði á gagnrýni danskra banka á íslenska bankakerfið og efnahagslífið í því ljósi, að dönsku bankarnir eru að keppa við þá íslensku á alþjóðavettvangi.

Blaðamaður bendir á að umsvif Íslendinga, ekki síst í Danmörku, séu gríðarleg í ljósi stærðar þjóðarinnar. Ingibjörg Sólrún svarar, að Íslendingar búi í alheimsþorpi. „Bankarnir eru ekki bara íslenskir þótt þeir hafi höfuðstöðvar á Íslandi heldur eru þeir alþjóðlegar fjármálastofnanir. Það verður að dæma þá á þeim grundvelli. Og það er rangt að leggja alla Íslendinga undir sama mæliker. Við erum ólík eins og allir aðrir."

Hún segir, að danskir bankar séu ekki alltaf sanngjarnir í umfjöllun sinni um íslensktefnahagslíf, sem standi traustum fótum. „Og almennt eru bankarnir sterkir. Þess vegna valda dönsku bankarnir vonbrigðum. Auðvitað má gagnrýna okkur en sú gagnrýni verður að vera réttmæt. Það sem við heyrum er einskonar hroki og byggir á fordómum."

Fram kemur í viðtalinu, að Ingibjörg Sólrún átti fund með Helle Thorning-Schmidt, leiðtoga danska Jafnaðarmannaflokksins. Hún segir að Samfylkingin á Íslandi hafi lent í fylgissveiflum líkum þeim sem danskir jafnaðarmenn upplifa nú og hún sé þess fullviss, að Thorning-Schmidt muni leiða flokkinn til sigurs á ný. „En Helle Thorning gengur ekki vel eins og sakir standa og það hef ég einnig upplifað í mínum flokki á Íslandi," segir Ingibjörg Sólrún.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert