Spáð er björtu veðri víðast hvar á landinu í dag en þó gæti orðið éljagangur sumstaðar á Suðurlandi. Veðurstofan gerir ráð fyrir 8-13 metrum á sekúndu og stöku éljum austast, en annars mun hægara og víða léttskýjað. Hiti verður 0 til 7 stig sunnan- og vestanlands að deginum en annars vægt frost.