Fjögurra ára stúlka féll niður af handriði rúllustiga í verslun Rúmfatalagersins á Akureyri rétt fyrir hádegi í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri féll stúlkan niður um tæpa 6 metra á teppalagt gólf.
Lögregla og sjúkralið voru kölluð út en að sögn lögreglu er ekki vitað um líðan stúlkunnar að svo stöddu, en hún var flutt á slysadeild til aðhlynningar.