Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu að Eiðistorgi 13-15 á Seltjarnarnesi. Að sögn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu kom eldur kom upp í þaki í íbúðarhúsahluta hússins, og slökkviliðið er á staðnum að vinna í því að rífa upp þakið, og slökkva eldinn. Eldurinn virðist vera staðbundinn í þakinu, og hefur ekki borist inn í íbúðir, að sögn slökkviliðs. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir sem stendur.