Fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu yfirfullar

mbl.is/Júlíus

Mikið var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og mikið um ölvun og læti að sögn lögreglunnar. Margir voru handteknir fyrir slagsmál, ölvun, og ýmsar óspektir og voru fangageymslur í Reykjavík yfirfullar í nótt.  Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru fangageymslur í Hafnarfirði því einnig nýttar.

Fjögur líkamsárásarmál komu upp, tveir voru stöðvaðir fyrir ölvunarakstur, og tveir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, að sögn lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert