Sextán ára piltur var stöðvaður við akstur bíls í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. Lögreglan hafði samband við foreldra drengsins vegna málsins.
Nokkur ölvun var í miðbæ Reykjanesbæjar og þurfti einn maður að gista fangageymslu sökum ölvunar og óspekta.
Einn ökumaður var stöðvaður í gærkvöldi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn ökumaður var stöðvaður á Grindavíkurvegi en hann hafði mælst á 132 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.