Frábært veður er í Hlíðarfjalli ofan við Akureyri í dag líkt og í gær og er áætlað að um 1000 manns hafi verið í fjallinu um hádegisbil. Í morgun var 10 stiga frost en nú er við frostmark, heiður himinn, sól og logn og aðstæður eins og best verður á kosið.