Ökumaður bíls, sem lenti á bifhjóli á gatnmótum Selvogs- og Óseyrarbrautar í gær, virti ekki umferðarrétt. Að auki hafði hann verið sviptur ökurétti og er grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Lögregla segir að málið verði tekið til frekari rannsóknar með tilliti til þessar meintu brota og líkamsmeiðinga af gáleysi.
Ökumaður bílsins ók austur Selvogsbraut og inn á Óseyrarbraut í veg fyrir bifhjólið sem var ekið í suður en umferð um Óseyrarbraut hefur forgang gagnvart umferð um Selvogsbraut. Áreksturinn var mjög harður og við hann kastaðist ökumaður bifjólsins um og yfir 20 metra frá árekstursstaðnum. Maðurinn brotnaði á fæti og hönd og mjaðmagrindarbrotnaði.
Ökumaður fólksbílsins slapp ómeiddur en bíllinn skemmdist mikið og bifhjólið er að öllum líkindum ónýtt.
.