Lögreglan á Akranesi stöðvaði ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna rétt eftir klukkan sjö í kvöld. Að sögn lögreglunnar er þetta fjórði ökumaðurinn í dag sem er tekinn fyrir fíkniefnaakstur. Ökumaður var færður á lögreglustöð til sýna og skýrslutöku.