Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað fyrrverandi formann Íþrótta – og tómstundaráðs í Kópavogi, Gunnstein Sigurðsson, vanhæfan til að fjalla um ráðningu í stöðu verkefnisstjóra æskulýðs- og tómstundarmála í Kópavogi.
Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar kærðu ákvörðun ÍTK til samgönguráðuneytisins og töldu óeðlilegt að Gunnsteinn tæki þátt í ráðningaferlinu vegna tengsla sinna við einn umsækjandann.
Viðkomandi umsækjandi hafði verið undirmaður Gunnsteins til margra ára, hann var meðmælandi hennar á umsókn um starfið og mælti hann með henni í starfið þegar ákvörðun var tekin um ráðningu. Þá var ráðningin umdeild þar sem gengið var fram hjá umsækjendum með meiri menntun og reynslu í málaflokknum, samkvæmt upplýsingum frá bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi, Guðríði Arnardóttur.
Í umsögn ráðuneytisins segir: „Gunnsteinn var vanhæfur til að taka þátt í ráðningaferlinu með þeim hætti sem það fór fram, þar sem hann var jafnframt meðmælandi eins umsækjanda og yfirmaður hennar. Honum var því óheimilt að taka þátt í afgreiðslu málsins með tillögu um ráðningu til bæjarstjórnar.”
Ráðuneytið fellst því á körfu kærenda um vanhæfi formannsins vegna ráðningar í stöðu æskulýðs- og tómstundarmála en telur ekki sýnt fram á að ráðninguna eigi að ógilda.