Víða greiðfært en hálkublettir á einstaka leiðum

Vegir eru mjög víða auðir þótt hálka eða hálkublettir séu á einstaka leiðum í flestum landshlutum.

Það er þoka á Hellisheiði og í Þrengslum og víðar á Suðurlandi.

Vegfarendum er bent á að hálka getur myndast mjög snögglega, á blautum vegar þegar kólnar, eins og búast má við í kvöld og í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert