Rannsókn stendur yfir á tveim ránum, sem framin voru í sitt hvorum söluturninum í Breiðholti í dag og í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Vitni hafa verið yfirheyrð og myndir úr eftirlitsmyndavélum skoðaðar. Í báðum ránunum var stolið fjármunum en ekki liggur fyrir hversu háar upphæðir er um að ræða.
Í báðum tilvikum réðist maður inn í söluturn, annars vegar í Eddufelli í gærkvöldi og hins vegar í Iðufelli í dag rétt eftir hádegi. Ræninginn hótaði starfsmönnum með sprautunál í báðum tilvikum, en ekki liggur fyrir hvort sami maðurinn hafi verið að verknaði, að sögn lögreglu.