Góð færð er um allt land þótt víða sé hálka eða hálkublettir. Á Suður- og Vesturlandi er víðast hvar greiðfært þótt einhverjir hálkublettir séu á
stökustað. Á heiðum og fjallvegum er víðast hvar hálka eða hálkublettir þó er Hellisheiði eystri greiðfær, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.