Um 20 kíló af dínamíti fundust í gærkvöldi við Þorbjörn í Grindavík. Er hér um að ræða 6 stykki af rúmlega 3 kg. dínamítstúpum. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvernig dínamítið komst á þessar slóðir en sprengjudeild landhelgisgæslunnar var kölluð til og fjarlægðið hún efnið.
Lögreglan segir, að díínamítið hafi veirð farið að „svitna" vegna hitabreytinga og því mjög hættulegt.
Lögreglan biður þá sem gætu gefið upplýsingar um dínamítið að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.