Bílaumferð í átt að höfuðborgarsvæðinu var ekki eins mikil í kvöld og búist var við. Hvergi urðu tafir á umferðinni og dreifðist hún vel yfir daginn. Minniháttar umferðaróhapp varð um fimmleytið þegar bíll lenti utan í víragirðingunni, sem skilur að akreinarnar í Svínahrauni. Engan sakaði.