Leitað að árásarmönnum á Suðurnesjum

Lögreglu- og sérsveitarmenn framkvæmdu í kvöld húsleit í Reykjanesbæ að mönnum sem eru taldir eiga aðild að líkamsárásarmáli sem átti sér stað í Breiðholti á laugardag. Ekki liggur fyrir hvort einhver eða einhverjir hafa verið handteknir í tengslum við málið. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Fjórir Pólverjar eru  í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn málsins, en mennirnir sem urðu fyrir árásinni eru einnig pólskir. Sjö særðust í árásinni.  

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert