Lögreglan á Akranesi vinnuhlaðin

Lögreglan á Akranesi hefur í nógu að snúast
Lögreglan á Akranesi hefur í nógu að snúast mbl.is/Július

Um 9o verkefni komu til afgreiðslu lögreglunnar á Akranesi í liðinni viku, að því er fram kemur á fréttavef lögreglunnar. 

Umferðin átti drjúgan þátt í verkefnum lögreglumanna eins og oft áður og voru m.a. 20 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur.  Mældur hraði var allt að 121 km á klst.

7 voru handteknir í vikunni grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn grunaður um ölvun við akstur.  Hafa það sem af er árinu 26 verið vegna gruns um fíkniefnaakstur og 9 grunaðir um ölvunarakstur.  Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra handtók lögreglan á Akranesi 47 fyrir fíkniefnaakstur og 42 fyrir ölvunarakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert