Maður meiddist á andliti þegar slanga slóst í andlit hans á Skarðsmýrarfjalli á þriðja tímanum í dag, en þar eru jarðboranir í gangi vegna Hellisheiðarvirkjunar. Maðurinn var fluttur á slysadeild í Reykjavík en meiðsl hans eru ekki talin vera alvarleg.
Að sögn lögreglu atvikaðist slysið þannig að slangan slóst í andlit mannsins þegar þrýstingi var hleypt á slönguna til að losa ístappa sem hafði myndast inni í henni.