Kveikt var í rusli í húsasundi á Snorrabraut í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á staðinn. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins liggur ekki fyrir hvort kveikt hafi verið í af ásetningi, eða ekki, en ekkert tjón varð af eldinum, og var hann fljótlega slökktur.