Ránstilraun á Akureyri

Akureyri.
Akureyri. mbl.is/Golli

Grímuklæddur maður ruddist í gærkvöldi inn í verslunina Hreiðrið á Akureyri og ógnaði þar afgreiðslukonu með barefli og krafðist þess að fá peninga afhenta. Afgreiðslukonan veitti manninum mótspyrnu og flúði þá maðurinn tómhentur af vettvangi.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri var par á þrítugsaldri handtekið í morgun í tengslum við rannsókn málsins og viðurkenndi maðurinn að hafa verið þarna að verki. Fólkið var látið laust að yfirheyrslum loknum og telst málið upplýst. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert