Nýliðanámskeið fyrir verðandi sérsveitarmenn verður haldið í september næstkomandi og að því loknu má búast við að fjölgað verði í sveitinni úr 42 sérsveitarmönnum í 48. Sérsveitarmenn eru nú á Norðurlandi, Suðurnesjum og á Suð-Vesturlandi.
Fram kemur á heimasíðu ríkislögreglustjóra, að sérsveitin hafi haft í nógu að snúast að undanförnu við sérsveitarverkefni auk almennra löggæsluverkefna. Á föstudag stóð sérsveitin að handtöku grunaðra manna vegna ráns á bensínstöð í Breiðholti, þar sem þeir ógnuðu starfsfólki með sprautunálum.
Á laugardag stöðvuðu sérsveitarmenn eftirlýsta bifreið á Reykjanesbraut vegna líkamsárása í Breiðholti og handtóku fjóra karlmenn sem veittu mótspyrnu við handtökur. Aðfararnótt páskadags handtóku sérsveitarmenn karlmann sem staðinn var að því að brjótast inn í bifreiðar. Maðurinn var með 19 sm langan hníf uppi í erminni og veitti mótspyrnu við handtöku.
Um páskahelgina tók sérsveitin síðan þátt í leit að grunuðum einstaklingum vegna líkamsárásanna í Breiðholti og aðstoðaði lögreglustjórann á Suðurnesjum við handtöku eins þeirra í gær.