Eftirlýstur Pólverji fundinn

Tomasz Krzysztof Jagiela.
Tomasz Krzysztof Jagiela.

Pólverjinn Tomasz Krzysztof Jagiela, sem lögreglan á höfðuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær, er kominn í leitirnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Mannsins var leitað í tengslum við rannsókn á árásarmáli í Keilufelli í Reykjavík þegar hópur manna réðist á Pólverja, sem þar búa.

Maðurinn gaf sig fram til lögreglu í Keflavík í morgun og er verið að flytja hann til Reykjavíkur. Fimm manns sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins og má reikna með að einnig verði krafist gæsluvarðhalds yfir manninum, sem gaf sig fram í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert