Ný þjónusta fór í loftið í morgun sem kemur sér vel fyrir þá sem gleyma að hafa með sér smámynt í stöðumæli borgarinnar. Í morgun fór í loftið ný þjónusta á vefsíðunni www.leggja.is, þar sem fólk getur greitt í gjaldskyld bílastæði í Reykjavík á einfaldan hátt með GSM símanum sínum.
Hægt er að leggja bílnum sínum með GSM síma hjá www.leggja.is bæði með því að hringja í síma 770-1414 eða senda SMS skilaboðið P í 1900. Aðeins þarf að greiða fyrir þann tíma sem bílnum er lagt og þarf því ekki að ákveða fyrirfram hversu lengi ætlunin er að vera.