Samkeppniseftirlitið fylgist með umræðu um verðhækkanir

Samkeppniseftirlitið segist fylgjast náið með opinberri umfjöllun fyrirtækja og samtaka fyrirtækja um hækkun á vöruverði og áréttar að umfjöllun og upplýsingaskipti milli keppinauta um verð, væntingar um verðlag eða fyrirætlanir um breytingar á verði, geti raskað samkeppni og skaðað hagsmuni neytenda.

Hið sama geti átt við um umfjöllun á opinberum vettvangi ef fyrirsvarsmenn fyrirtækja gefa t.d. nákvæmar upplýsingar um fyrirhugaðar verðhækkanir eða lýsa yfir vilja til verðhækkana. Þannig geti slík umfjöllun verið til þess fallin að hvetja keppinauta á markaði til verðhækkana og stuðlað að ólögmætu samráði.

Sömuleiðis geti umfjöllun af þessu tagi á vettvangi samtaka fyrirtækja varðað við samkeppnislög, sem banna samtökum fyrirtækja að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögunum. Í banni samkeppnislaga við samráði felst að fyrirtæki ákveði að öllu leyti sjálfstætt hvernig þau hegði sér á markaði og hvernig þau verðleggi vörur sínar og þjónustu. Mega samtök fyrirtækja með engu móti vinna gegn þessu sjálfstæði félagsmanna sinna með því t.d. að hvetja til eða réttlæta verðhækkanir.

„Í þessu ljósi telur Samkeppniseftirlitið afar mikilvægt að forsvarsmenn fyrirtækja og samtaka fyrirtækja gæti þess sérstaklega að opinber umfjöllun af þeirra hálfu feli ekki í sér beina eða óbeina hvatningu til verðhækkana á viðkomandi markaði. Slík háttsemi er til þess fallin að valda neytendum og atvinnulífinu tjóni," segir í tilkynningu frá stofnuninni. 

Fyrirtækjum og einstaklingum er bent á að hægt er að koma ábendingum um þessi málefni á framfæri í gegnum heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert