Umferð í Ártúnsbrekku gengur afar hægt þessa stundina en um tugir flutningabílum með tengivagna hefur verið lagt á götuna skammt frá verslun N1 og loka þeir umferðinni í báðar átti. Um er að ræða aðgerðir atvinnubílstjóra sem vilja mótmæla háu eldsneytisverði.
Að sögn viðstaddra eru bílaraðir á Miklubraut allt að Háaleitisbraut. Lögreglan hefur ekki komist á svæðið enn vegna umferðartafanna.