Eldur í rútu Dalton hljómsveitarinnar

Slökkviliðsmenn við rútu Dalton.
Slökkviliðsmenn við rútu Dalton. mynd/Arnar Freyr Magnússon

Eldur kviknaði í rútubifreið hljómsveitarinnar Dalton á bílastæðinu hjá Háskólanum í Reykjavík. Sveitin var í Verslunarskóla Íslands að skemmta nemendum í hádeginu.

Að sögn slökkviliðs var enginn í rútunni þegar eldur kviknaði og enn er óljóst hver upptökin voru. Dælubíll var sendur á staðinn og eldurinn slökktur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert