Bílvelta varð um tíuleytið í gærkvöldi, við bæinn Gröf í Eyjafjarðarsveit.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri er ekki ljóst hvernig slysið bar að, en jeppi lenti útaf veginum og valt.
Tvær stúlkur voru í bílnum og voru þær fluttar á slysadeild, en frekari upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir.