Atvinnubílstjórar hættu aðgerðum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar laust fyrir klukkan 13 og óku bílum sínum sínum síðan frá gatnamótunum á um 3 km hraða suður Kringlumýrarbraut.
Lögreglumenn á mótorhjólum komu á móti bílunum við Nesti í Fossvogi og skipuðu ökumönnunum að hætta aðgerðunum tafarlaust og urðu bílstjórarnir við þeim tilmælum í bili.
En í kjölfarið tóku nokkrir bílstjórar sig til, og óku afar hægt eftir Hafnarfjarðarvegi. Er löng bílaröð fyrir aftan þá. Lögreglumenn á mótorhjólum reyna að brjótast í gegnum bílaröðina til að ná til bílstjóranna.